Jóhann Gunnarsson (Organjohann)

Back   /  Til baka

Botn og fyrirstaða.

Fyrir hverja pípuvídd er gerður listi í réttu máli, úr beyki í mjórri pípurnar, en úr oregon pine í þær stærri (þetta efni átti ég, vel hefði mátt nota annan harðvið). Í miðlungs- og stærri pípunum eru botn og fyrirstaða söguð út í eitt eins og sést til hægri á myndinni, en í þeim mjórri er fyrirstaðan laus frá botninum. Þetta sést betur á næstu myndum. Gat er borað í gegnum botninn, hæfilegt fyrir loftslöngu.